fimmtudagur, 6. september 2007

Ekki á morgun heldur hinn:)

Nú eru ekki nema 2 dagar í reunionið okkar og allir að komast í geðveikt stuð!
Dagskráin er þannig að það er mæting upp í Grunnskóla (nýjaskólamegin) kl 17:00. Þar ætla Magga Ísaks og Guðjón Skólastjóri að taka á móti okkur! Svo verður bókasafnið opið og hægt verður að skoða myndir og rifja upp gamla og góða tíma:)


Kl. 19:00 Ætlum við svo að hittast heima hjá Dodda þar sem gleðin tekur völdin!
Allir þurfa svo að koma með sitt eigið áfengi:)

Kostnaður á mann er 2000 kr. (matur, snakk, gos, og ef afgangur.. þá brennivín).
Það má leggja inn á reikn: 314-26-914 kt. 240481-4059.

Það væri best ef þið gætuð lagt inn sem fyrst, helst fyrir hádegið á laugardaginn þar sem við þurfum að borga það sem við kaupum:)

Og svo vil ég einnig minna ykkur á að koma með gamlar myndir:)

Partý stuð kveðja
Bára

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Það verður rosa skemmtilegt....Hlakka til að hitta ykkur öll!!! Kv.bella mæjónes

Nafnlaus sagði...

Þetta verður æðislega gaman, eins og ofangreind (Bella mæjónes) hlakka ég til að hitta ykkur öll;)
kv. Katrín